62. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í forsætisnefndarherbergi, þriðjudaginn 18. júní 2019 kl. 13:10


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 13:10
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 13:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 13:10
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:10
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 13:10
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 13:10

Jón Þór Ólafsson og Brynjar Níelsson voru fjarverandi. Þórunn Egilsdóttir boðaði forföll.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:10
Fundargerðir 60. - 61. fundar voru samþykktar.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst ohf. Kl. 13:19
Samþykkt að vísa skýrslunni til fjárlaganefndar. Umfjöllun um frekari málsmeðferð frestað.

3) Rannsókn kjörbréfs Kl. 13:23
Á fundinum var rannsakað kjörbréf Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, 3. varaþingmanns á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi. Ekki voru gerðar athugasemdir við kjörbréfið og mælir nefndin með samþykkt þess.

4) Önnur mál Kl. 13:25
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:25